Skilmálar

Joyroom er í eigu Föðurlandsins ehf, kt. 450613-0880.
Laugavegur 178, 105 Reykjavík
Sími: 430 0000
Netfang: joyroom [hjá] joyroom.is

Með því að nota joyroom.is samþykkir þú skilmála þessa.

Joyroom áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Þetta á einnig við um ef villur í reiknireglum vefverslunnar á sér stað.

Afhending vöru
Pantanir sem berast fyrir klukkan 11.00 á virkum dögum eru afgreiddar samdægurs en pantanir sem berst eftir klukkan 11.00 eru afgreiddar daginn eftir. Ef pöntun á sér stað um helgi eða á öðrum frídögum þá verður hún afgreidd næsta virka dag. Hægt er að sækja pantanir Joyroom alla virka daga frá klukkan 13.00-18.00. Viðskiptavinir sem velja í greiðsluferli að fá vörur sínar sendar til sín velja annað hvort Dropp ehf, kt. 580619-1260 eða Íslandspóst, kt. 701296-6139. Starfsmaður Joyroom gæti einnig tekið að sér að keyra pantanir til viðskiptavinar. Sé varan ekki til á lager verður haft samband og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af pöntunum dreift af Dropp eða Íslandspósti ehf gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp ehf og Íslandspósts ehf um afhendingu vörunnar. Joyroom ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Joyroom til viðskiptavinar er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun Joyroom eru með inniföldum 24% vsk. Sendingarkostnaður er samkvæmt verðskrá Dropp ehf og Íslandspósts ehf að viðbættu pökkunargjaldi sem bætist aukalega við endanlegt verð í greiðsluferlinu. Það er ekki hægt að panta og fá sendar vörur til útlanda.

Að skipta og skila vöru
Skilaréttur rennur út 14 dögum frá vörukaupum. Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður á joyroom.is þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavini boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé eftir því leitað. Upphæð bóta vegna galla verður aldrei hærri en verðmæti upprunanlegu vörunnar. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000, laga um neytendakaup og laga um lausafjárkaup. Sé vara afgreidd vitlaust sendir Joyroom rétta vöru við fyrsta tækifæri og greiðir allan sendingarkostnað sem af því hlýst.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Eyðing persónuupplýsinga
Viðskiptavinir geta óskað eftir því að persónulegum gögnum (heimilisfang, viðskiptasaga, símanúmer o.s.frv.) sé eytt úr gagnagrunum Joyroom. Joyroom ábyrgist ekki upplýsingar sem önnur fyrirtæki og þjónustuaðilar eins og t.d. Dropp, Íslandspóstur og SaltPay, Netgíro, Pei safna í tengslum við viðskiptin.

Eignarréttur
Seldar vörur teljast eign seljanda þar til kaupverð hefur verið greitt að fullu.
Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur verið innt af hendi.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.