OPENEAR Air F3 þráðlaus heyrnartól með spöng, 19 klst spilun, Noise-Canceling hljóðnema, dual-connections & IPX5 vatnsvörn
29.995 kr.
Virkilega góð þráðlausu heyrnartól með spöng sem hentar öllum sem tala mikið í síma í vinnunni. Innbyggður dual hljóðnemi með Noise Cancellation sem lokar á umhverfishljóðin í kringum þig. Sá sem þú talar við í síma heyrir því ekki það sem er að gerast í kringum þig. Heyrnartólin fara ekki inn í eyrun svo þú getur hlustað á tónlist, rætt við vinnufélaga og heyrt í umhverfinu í kringum þig án þess að missa athygli og fórna hljómgæðum.
Frábær hljómgæði og því upplagt að nota til að hlusta á tónlist eða til að horfa á þætti og kvikmyndir. Rafhlaðan endist í allt að 19 klst í spilun á einni hleðslu. Það tekur aðeins 10 mínútur að ná 70% hleðslu og 50 mín að fullhlaða tækið. Mjög góð samhæfni og hröð tenging við alla helstu snjallsíma og önnur bluetooth tæki. Stýringin er á hægri hlið við eyra en þar getur þú stjórnað afspilun, hækkað, lækkað, kveikt og slökkt. Á vinstri hlið er hnappur til að svara símtali, leggja á, setja tónlist á pásu og kveikja aftur. Heyrnartólin loka ekki fyrir eyrun. Þú getur því hlustað á tónlist, talað í síma, rætt við vinnufélaga og heyrt í umhverfinu í kringum þig án þess að missa athygli og fórna hljómgæðum.
Heyrnartólin henta fullkomlega öllum þeim sem vinna á fjölmennum vinnustöðum, tala mikið í síma í vinnunni, atvinnubílstjórum og öllum þeim sem vinna í háværu umhverfi.
Þú verður ekki fyrir vonbrigðum með þessi heyrnartól.
– Litur: Svartur
– Þyngd: 25g
– Bluetooth 5.3 (allt að 10m drægni)
– ENC hljóðeinangrandi hljóðnemar (Noise Cancellation)
– Rafhlöðuending: Allt að 19 klst í spilun
– Hraðhleðsla: 70% hleðsla á aðeins 10 mín
– Vatnsvörn: IPX5
– Dual connection: Virkar tengingar við bluetooth tæki samtímis
– Segulhleðslusnúra fylgir með
– Vottanir: CE, ROHS og FCC
Til á vörulager










